EKKERT MERKILEGUR PAPPÍR 20062. -24. september 2006 á Kaffi Karólínu, Akureyri Linda sýnir hér litlar koparætingar þrykktar á grafíkpappír og ýmiskonar pappír. Hún segir um verkin: "Ég hef alltaf verið sérlega heilluð af pappír. Sem barn safnaði ég servíettum af mikilli alvöru og seinna fór ég að sanka að mér allskyns pappír, kannski af enn meiri alvöru. En þetta er ekki safn í eiginlegri merkingu því ég hef gengið að þessum pappír í allskyns verkefni og notað það sem hentar hverju sinni. Þetta er ekkert merkilegur pappír. Flestar arkirnar hef ég handfjatlað mörgum sinnum í leit að þeirri sem mundi henta best fyrir eitthvert verkefnið og ég hef haft mismikið fyrir því að finna og velja hverja og eina. Nú hafa nokkrar arkir fengið sitt hlutverk. Örlítið augnakonfekt, ekkert merkilegur pappír." |